14. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 17. nóvember 2020 kl. 09:30


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00

Helgi Hrafn Gunnarsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð


2) 56. mál - samvinnufélög o.fl. Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og samþykkti að afgreiða það til 2. umræðu.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu, þar af Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson með fyrirvara.

Helgi Hrafn Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi í nefndinni er samþykk nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu.

3) Önnur mál Kl. 09:54
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:57